Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Auđur Ösp Guđjónsdóttir
  • Stađur: Seyđisfjörđur
  • Símanúmer: 8448518
  • Atvinna: Au pair i Frakklandi
  • Hjúskaparstađa: Síngle
  • Um mig: Ég er tvítug Seyđisfjarđar mćr sem er ađ virđa heiminn fyrir sér ađ svo stöddu í Normandíu í Frakklandi. Ég vinn fyrir mér sem Au pair hjá Ekkju sem er međ 2 unglinga 16 ára stúlku og 13 ára strák. Eins og er skil ég ekki nokkurn mann (nema ţessi 2% sem tala Ensku) og ţađ skilur mig enginn heldur á móti....
  • Annađ: If you want to sing out, sing out, and if you want to be free, be free, cause there's a million ways to be, you know that there are. Símanúmeriđ mitt er +33659799410

Könnun

Á ég ađ koma heim um jólin?!

Innskráningar kubbur

Út á stoppistöđ!

15. janúar 2009 klukkan 09:25
Nú hef ég sko mikið að segja frá!
Fyrsta vikan í Háskólanum að verða búin og ég nokkurnvegin búin að læra á strætó. Reyndar tók það nokkrar tilraunir að komast í háskólann í fyrsta skiptið!

Mánudagur:
Fyrsti tími byrjar klukkan 10 svo ég ákveð að fara snemma af stað eða svona um það bil 9 ef ekki bara 8:40 af stað. Ég kíkti á Bus.is til þess að finna út með hvaða strætó ég átti að fara og sá að það var best að fara frá Rúv (sem er bara yfir 1 garð). Ég stökk yfir götuna til að taka stætó, og vitið menn þetta gat hún...en svo komst ég að því að ég fór í vitlausa átt! ég þurfti semsagt ekki að fara yfir götuna. Ég er semsagt stödd í Mjóddinni og veit ekkert hvert ég á að fara næst, svo ég spyr bara í afgreiðslunni...þar er með sagt að taka bara þristinn sem fer alveg að háskólanum. Þristurinn kemur og ég stekk upp í, því miður er hann nærri fullur af fólki, svo ég neyðist til þess að sitja öfugt sem er kannski ekki alveg það besta fyrir óvana manneskju! Allt kemur fyrir ekkert og mér gengur bara vel! Ég horfi út á flugvöllinn og sjóinn í baksýn með fallegann himininn að baki! og allt í einu stoppar bíllinn, ég hef ekki hugmynd um hvar ég er svo ég lít snöggt upp! og hoppa út þar sem ég tel mig vera fyrir utan háskólann! Maðurinn í afgreiðslunni hefði mátt segja mér að þetta væri ekki beint fyrir utan aðalhúsið eins og hann sagði, heldur við þjóðminjasafnið, því þegar ég lít upp aftur og ætla að líta á hið stórkostlega hús sjálfan Háskóla Íslands, þá er mér brugðið...ég stend fyrir neðan eitthvað hátt hvítt og upplýst hús! Jú ég stend fyrir framan Landsspítalann! Nú verða góð ráð dýr þar sem að ég kann bara ekki bofs í strætókerfi borgarinnar...en mín beið bara þarna í korter eftir næsta þristi...
Þegar hér kemur við sögu er klukkan 5 mín í 10 og ég að verða nokkuð stressuð að mæta of seint í skólann, arka hressilega af stað svo síminn dettur úr vasanum án þess að ég taki eftir því fyrr en tíminn eftir hádegi er búinn, sem sagt um 3 leytið...
Ég fer heim og hringi út um allt, til að athuga hvort einhver hafi fundið símann og skilað honum samviskusamlega í afgreiðslu einhverstaðar þarna á svæðinu! Eftir miklar símaraunir ákveð ég að hringja í hann föður minn til þess að tjá honum það að ég sé búin að týna símanum mínum svo hann nái ekki í mig í símann minn...Í því samtali kemst ég að því að síminn minn fannst og sá sem fann hann fór með hann í afgreiðsluna á hlemmi...
Það hitti ég Oddný og Ingunni sem voru á leið í Böns og svo heim, svo ég fór bara smá gönguferð með þeim og endaði á að taka strætó frá háskólanum, niður á hlemm og svo heim =)

Nú 3 dögum síðar gengur allt mikið betur =)

Au revoir
Ösp
Auđur Ösp Guđjónsdóttir
5 athugasemdir

Ég menntastúlka er, er, er...

18. nóvember 2008 klukkan 17:50
... og í háskóla ég fer, fer fer =)... Nánar
Auđur Ösp Guđjónsdóttir
6 athugasemdir

10. nóvember 2008 klukkan 10:40
Nú styttist í þessa dvöl mína í Þýskalandi, ég er að pæla í að fara til Englands í byrjun næstu viku, vera þar hjá Nínu og Paul í nokkra daga áður en ég held til Dusseldorf frá Stansted. Ég er reyndar ekki búin að panta far, en held ég geri það í kveld =) 

Hef ekki hugmynd um það hvernig maður segir bless á Þýsku,
svo það verður bara Íslenskt bæ í þetta skiptið =)
Bless,
Auður Ösp
Auđur Ösp Guđjónsdóttir
4 athugasemdir

Gott ađ allt er komiđ á hreint

04. nóvember 2008 klukkan 17:46
Þá er nú allt komið á hreint! Ég er að fara til Dusseldorf í kringum 21. nóvember =)
Ég var reyndar bara í gær á báðum áttum, en þegar að kallinn sem ég man ekki í augnablikinu hvað heitir, hringdi í mig til að spjalla. fann ég það bara að ég vildi fara til þeirra! ( Ég ætla samt ekki að reyna að segja að það hafi ekki verið líka Erlu að þakka! væri ekki svona viss ef að hún hefði ekki farið að tala við mig).
Líklega fer ég frá Íslandi til London og þaðan til Dusseldorf (tekur ekki nema um 10 tíma) í staðin fyrir að fara til Frankfurt, því það er alveg Helmingi dýrara að fara með Icelandair en Iceland express og Air Berlin.

Læt heyra betur í mér þegar allt er komið á hreint =)
Auđur Ösp Guđjónsdóttir
3 athugasemdir

From Iceland?? You mean Island?? Not?? Where is Iceland??

23. október 2008 klukkan 19:50
Þessa spurningu fékk ég einmitt í dag (spurningar) frá stelpu sem kemur frá Malasíu eða eitthvað álíka...en er búin að búa í Frakklandi í svona 10 ár og ferðast mikið um Evrópu...

Ég er búin að vera eitthvað ótrúlega bissí þessa vikuna, stress um að fá flug heim, hvenær ég eigi að fara, ætti ég að vera eina viku lengur, hvað ef? hvað ef? Alltaf hægt að hugsa svona!
Annars er mér farið að lítast helvíti vel á að fara til Þýskalands, nánar tiltekið Dusseldorf, þar sem fjölskylda hafði samband við mig fyrst á Au pair world, og hringdi svo um kvöldið í mig =) Ég veit að Erla yrði sátt við það ef að ég færi þangað! En hún er einmitt au pair þarna í Dusseldorf... Þarna er stelpa sem er 3ja og hálfs árs sem talar btw ensku og svo strákur sem er bara nokkurra mánaða =)
Ég fór á einhvern sveitabæ í gær, þar sem ég sá allskonar dýr sem ég hefði ekki séð áður, svo sem lamadýr (held ég að það hafi verið) og geitur t.a.m. (Myndir hér)
 Ég komst að því þar hvernig það er að hlaupa eins og hæna! því þessar frönsku eru bara allt öðruvísi en þessar íslensku, ÞÆR ERU LOÐNAR Á LÖPPUNUM...svo sá ég held ég heimsins stærstu kanínur! og skil loksins afhverju bangsa-kanínur eru svona stórar og groddaralegar, en ekki littlar og sætar eins og heima!
Í dag fór ég út á St.Address sem er svona ríkramannahverfi því þar eru öll húsin með view yfir sjóinn! og öll húsin svona ný og eitthvað, allavegana þá var ég að fara í svona Engish Converstation, sem byrjaði bara vel, þetta venjulega ég þurfti að endurtaka nafnið mitt svona 7 sinnum (og þá bara Ösp) til að konurnar næðu því. Svo þurfti ég að segja mína frakklandssögu svona 10 sinnum, því það voru alltaf að koma fleiri og fleiri konur sem spurðu allar að því sama...en best fannst þeim þegar ein gat sagt Arnaldur og ég skildi það! Þá vorum við að tala um bókin La Femme en vert (Stelpan í grænu) eða Grafarþögn og hápunkturinn var þegar allir voru að reyna að segja Auður Ösp Guðjónsdóttir...


Annars er heimferð plönuð á næsta leiti! (held ég allavegana) og skautaferð á sunnudaginn ELDsnemma var mér tjáð, en það er í lagi því undanfarið hef ég ekki getað sofið út...sofnað um 1-2 og vaknað milli 7-8. Gleði gleði...

Au revoir,
Ösp

Auđur Ösp Guđjónsdóttir
1 athugasemd

Ţá veistu ađ ţú veist ekki neitt...

20. október 2008 klukkan 09:45
Jæja, þá er það áleðið. Ég er að koma heim!

Ég veit ekki alveg hvenær ég kem heim, eftir kannski 2 vikur eða eitthvað, hef ekki Guðmund..En, ég er að koam heim...Reyndar veit ég heldur ekki hvort eða hvenær ég fer út aftur eða hvert! Það eina sem ég er með á hreinu er að ég er að fara heim til að hugsa málin! Kannski fer ég aftur út til Þýskalands fyrir Jól, kannski í Janúar, kannski fer ég bara að vinna á seyðis! Þetta kemur bara allt í ljós.

Annars hef ég svo lengi sem ég man verið hrifin af hnetum, sérstaklega í súkkulaði :Þ En í gær ristaði Mamú hneturnar sem við týndum seinustu helgi, og þær eru VIÐBJÓÐSLEGAR!! þær voru ekki svona stökkar, heldur einhvernvegin blautmjúkar! og brunabragð!
Í gær var einnig mjög gott veður svo við krakkarnir skelltum okkur í Badminton úti í garði. Ég og Julie saman í liði á móti strákunum =) Mikið er ég farin að sakna þess að fara með Sif og Kötlu og jafnvel Kareni í Badminton =/

Ég læt heyra í mér þegar nær dregur heimför...

Au revoir,
Ösp
Auđur Ösp Guđjónsdóttir
5 athugasemdir

Hjálp!

16. október 2008 klukkan 16:23
Hvað gera bændur nú?
Ég er búin að segja Veronique að ég vilji fara vegna þess að mér líði ekki vel á þessum stað, hún virðist skilja það eina stundina, en þá næstu býðst hún til að ráða ræstingarkonu til að þrífa íbúðina! Hún var að pæla hvort að það væri of mikið fyrir mig að versla inn, þrífa og eldamatinn fyrir hádegi, en það er held ég ekki málið. Mig bara langar ekki að vera á þessum stað, mér líður bara ekki vel hérna! og hana nú!

Ég sagði Nicolas frá þessu í gær, ég var með hnút í maganum allan gærdag og alltaf að líta á klukkuna, vegna þess að Veronique bað mig um að bíða með að segja honum frá þessu þangað til að hún væri búin að vinna og komin heim, ef hann tæki þessu mjög illa....en Ó Mæ god hvað var erfitt að segja honum frá því að ég færi eftir næstu viku líklega.
Krakkinn sem er 13 ára kom sýndi ekki nein svipbrigði, og virtist alveg skilja þetta þegar ég sagði honum að mér liði illa hérna! Hann sagði meira segja sjálfur að það væri erfitt að kynnast frökkum og ef þú talaðir ekki frönsku væri það nær ómögulegt! Og að hann skildi það vegna þess að ég ætti enga vini hérna og hefði engann til að tala við.
Shit hvað ég á eftir að sakna þessa stráks mikið þegar ég fer.
Á eftir þarf ég að segja Enrique (Mexicanska skiptinemanum sem býr hjá okkur) frá því að ég vildi fara, ég býst ekki við því að það verði auðvelt þar sem hann var voðalega dapur í dag borðaði nánast ekkert (ekki frekar en ég undanfarna viku) vegna þess að hann er með svo mikla heimþrá. Og að þurfa að segja 16 ára strák sem er með heimþrá að ég vilji ekki vera á þessum stað og vilji fara heim verður ekki auðvelt.
Svo býst ég við því að þurfa að segja Julie þetta um helgina, ég veit ekki hvernig það á eftir að fara. Svo ætlar Veronique að tala betur við mig um þetta. En ég er föst á því að ég vil fara heim og ekki fara til frakklands aftur í bráð, nema þá að fara með einhverjum í ferðalag helst !

Annars er ég búin að skrá mig á Au pair síðu aftur, Nína frænka hringdi í mig í gær og það var svo gott að heyra í henni! Hún sagði mér frá Auglýsingu í blaðinu um aupair stöðu í London, ég hefði þurft að byrja í endan okt og hitta hana fyrst, svo ég held að það sé út úr myndinni. Ég er búin að vera að tala við fjölskyldu í Madrid og það sem heillar er að ég hefði nægan tíma til að fara í skóla, og plús að elskan mín hún Arna býr þar, svo ég þekki einhvern þar fyrir. 2 fjölsk í frakklandi hafa haft samband við mig, en ég held að ég sé ekki tilbúin til að vera áfram í Frakklandi. Fjölskylda í Sviss vill fá mig í Janúar og svo er Fjölskylda í Þýskalandi.

Áður en ég lagði af stað til Parísar, svona viku, tveim vikum áður, höfðu 2 konur samband við mig. Önnur er íslensk og býr í Köben og hin er sænsk en á íslenskan mann. Þær höfðu báðar séð að ég vildi fara sem au pair og voru að spyjast fyrir ef að ég gæti komið til þeirra! ég sagði þeim að mig langaði en ég væri að fara til Frakklands. Svo í morgun ákvað ég að spurja þær um gang mála, og komst að því að þær eru báðar að leita af au pair!

Svo núna vantar mig hjálp við að velja og hvað ég eigi að gera! Og það fljótt !

Au revoir,
Ösp
Auđur Ösp Guđjónsdóttir
5 athugasemdir

Tíđindi

14. október 2008 klukkan 13:33
Já það dregur nú heldur betur til tíðinda hérna hjá mér! Ég er ekki alveg að fíla þetta hérna. Ég hef engann til að tala við utan fjölskydunnar og þekki engan. Fólk út á götu talar ekki ensku svo ég get ekki talað við það!
Ég er því búin að ákveða að segja upp þessari fjölskyldu, og ætla að reyna að finna einhverja aðra fjölskyldu þar sem ég get farið í skóla og hitt fólk.
Eins mikið og það var af frönskum fjölskyldum sem voru með prófil á Síðunni í sumar, þá er eiginlega engar núna og bara breskar, stöku þýskar og ein og ein frönsk...En ég ætla að halda ótrauð áfram að leita að góðri fjölskyldu þar sem ég ÆTLA AÐ FARA Í SKÓLA...
Ég á samt eftir að segja Veronique frá þessu og geri það á morgun, mér kvíður svo fyrir að ég er alveg með hnút í maganum...Ég vona ynnilega að hún haldi fari ekki að gera einhverjar kröfur um það að ég verði hérna framm að jólum eða eitthvað, þar sem ég myndi bara ekki meika það!

En svona til þess að draga þetta þunglyndi aðeins upp þá er ég búin að finna ammælispakkann hennar Guðlaugar...hann hafði neflinlega farið til ÍRLANDS, svo hún fær hann eftir svona veku eða svo  (vona ég allavegana)...
Svo var mér um daginn boðið að kenna stelpu Ensku á daginn, mig langar rosalega að leggja mitt að mörkum við að reyna að kenna þessum lýð ensku, en ef ég er að fara, þá tekur það sig varla
!

Ég blogga svo um leið og ég hef einhverjar nýjar fréttir =)
(nema að hún Vero hafi drepið mig fyrir að vilja fara)
Auđur Ösp Guđjónsdóttir
5 athugasemdir

Leiđindi

10. október 2008 klukkan 08:00
Bonjour a tout!
Haldiði að þau hafi ekki bara verið að segja að það væru 3 vikur Í fríið sem er ekki nema í 11 daga! Þau sögðu að það væri 3ja vikna frí en  svo er það bara ekki í 3 vikur. En ég er að pæla í að fara til Madridar að hitta Örnu, eða að fara í helgarferð til Parísar, geri allavegana eitthvað meira en að hanga hérna og éta nammi! (sem ég hef borðað óvenju lítið af! )

Er að fara til slátrarans að kaupa hakk til að búa til Pasta Bolougnes! Elska stundum hvernig Frakkar borða =) Svo er Annar tími í Frönsku eftir hádegi =) Vona ynnilega að það komi fleiri en síðast!

 Bon aprémidi
Au revoir,
Auður Ösp
Auđur Ösp Guđjónsdóttir
3 athugasemdir

Bonjour Madamme!

07. október 2008 klukkan 17:53
Haldið þið ekki að mín sé bara búin að elda kvöld mat og búin að borða klukkan korter í 8! það efa ég að gerist oft í Frakklandi, enda byrjum við oftast að borða upp úr 8 eða svona meira þegar hún er að verða 9 =)
Ég byrjaði daginn á því að sofa yfir mig, en ég ætlaði að fara í morgunmat niður á skrifstofu í morgun, en mínar 5 vekjaraklukkur náðu ekki að vekja mig í þetta sinn...
Svo til að róa hugann (þar sem ég var verulega reið út í sjálfa mig) fór ég í langa göngu, sem endaði í innkaupaferð í meisturunum!
Eins góð og mér finnst ekta frönsk "gömul" Baguette, þá er ég eiginlega hætt að borða brauð, en það er allt í lagi því að hann Enrique sér alveg um það! Hann borðar svona hálft Baguette í hverjum matartíma...enda er brauðið bara staðsett þar sem hann situr þegar er verið að leggja á borð =)

Annars er líf mitt bara búið að vera eins, ekkert að gera og ég þekki ekki neinn! Og hvað á ég svo að gera í þessu 3ja vikna fríi mínu núna í enda Október, þegar ég þarf ekki að elda hádegismat og ekki að vera með Nico, á ég að fara og vera í Octeville allan tímann? á ég að vera hérna í íbúðinni að gera ekki neitt? Á ég að reyna að fara eitthvað til Parísar að hitta Amöndu? Eða ætlar einhver að heimsækja mig??? (á ekki von á því eins og málin standa! en það má láta sig dreyma)
Bið að heilsa öllum,
ég er bara ekki frá því að ég sakni flest allra! Knús og Kossar

Au Revoir,
Ösp

Auđur Ösp Guđjónsdóttir
3 athugasemdir